
Að koma inn
Vatni og náttúrulegum ilmum er hellt á heita steina og hitanum dreift um saununa með handklæði eða blævæng — birkiilmur, hæg tónlist, og svitinn byrjar að myndast.
Þrjár 15 mínútna lotur í góðum gusuhita með tónlist, náttúrulegum ilmum, birki, hunangi og þara. Kæling í grasi, sjó eða baðkari á milli lota ásamt léttum veitingum.
Leiddar saunagusur og einkaviðburðir í einstakri náttúru Leirunnar.
Gusumeistarar leiða gesti í gegnum lotur með mismunandi tónlist, þar sem vatni og náttúrulegum ilmum er hellt á heita steina og hitanum dreift um saununa með handklæði eða blævæng sem eykur svitamyndun og hreinsun líkamans.
Gusumeistarar Steinunnar eru einnig einstakir í því að dreifa hugum gesta til að gera þeim léttara fyrir að þola hitann. Á milli lota er líkaminn kældur niður og gesturinn fær stund til að anda, nærast, njóta náttúrunnar og finna kyrrðina áður en haldið er aftur inn í hitann.
Steinunn Saunagus fékk nafnið sitt frá Steinunni gömlu, frænku Ingólfs Arnarsonar, landnámskonu sem talin er hafa verið fyrsta konan sem eignaðist land á Íslandi — og er það landið sem Steinunn Saunagus stendur á núna. Talið er að Steinunn hvíli í jörð Hólmsins ofan við húsin.
Okkur þykir Steinunn tilvalið nafn á saunagusu þar sem gusumeistarar unna steinum til að una fólki.

Vatni og náttúrulegum ilmum er hellt á heita steina og hitanum dreift um saununa með handklæði eða blævæng — birkiilmur, hæg tónlist, og svitinn byrjar að myndast.

Hunangsilmur tekur við og tónlistin þéttist. Svitinn eykst og gusumeistarinn leiðir gesti, dreifir huganum svo hitinn verður léttari að þola.

Síðasta lotan er heitust, með þaraseyði á steinunum. Svo aftur út — í grasið, sjóinn eða baðkarið — og kyrrðin tekur við.
Sjálf gusan er þrjár 15 mínútna lotur í góðum gusuhita. Reiknaðu með rúmum klukkutíma í heildina með komu, kælingu á milli lota og léttum veitingum eftir á.
Sundföt, handklæði og eitthvað þægilegt til að fara í eftir á. Sloppur er vel þeginn en ekki nauðsynlegur. Brúsi með vatni eða steinefnadrykk hjálpar á milli lota, og sjóskór eða inniskór gera gönguna í kælinguna þægilegri.
Flestum, allajafna — en mikill hiti reynir á líkamann. Ef þú ert þunguð, með hjarta- eða æðasjúkdóm, háan blóðþrýsting eða aðra sjúkdóma sem hiti getur haft áhrif á, ráðleggjum við að tala við lækni fyrst og láta gusumeistarann vita áður en þú byrjar.
Nei — hiti og áfengi eiga ekki samleið og auka hættu á ofþornun og yfirliði. Besti undirbúningurinn er vatn og næring fyrir gusuna.
Um 10–15 mínútum áður en gusan hefst, svo þú náir að klæða þig og koma þér fyrir. Gusumeistarinn opnar dyrnar á mínútunni og lokar þeim þegar lotan er hafin, svo mætingartíminn skiptir máli.
1 = Ljúfur hiti, 2 = Miðlungs hiti, 3 = Mikill hiti. Talan segir til um hversu kraftmikil gusan er hjá viðkomandi gusumeistara þann daginn.
Nú veistu hvað bíður. Næsta skref er að mæta.
BÓKA GUSU