HÓLMUR HEILSA
STEINUNN SAUNAGUS
STAÐURINN

Fimm hektarar við sjóinn

Hús Hólmsins í gullnu kvöldljósi
HÓLMUR HEILSA

Við eigum okkur draum um að skapa lýðheilsu- og listasetur á Suðurnesjum — stað þar sem fólk getur komið, hægt á sér og notið nálægðar við lítt snortna náttúru og óskerts útsýnis yfir hafið og fjöllin. Stað þar sem hver árstíð hefur sinn sjarma og náttúran ræður ferðinni.

Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus eru á um fimm hektara landi við sjóinn, mitt á milli Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar, í Leirunni. Þar standa gömul hús og ný, hvert með sitt hlutverk og sína sögu, en það er náttúran allt um kring sem gefur Hólminum sína sérstöku töfra til slökunar. Háa óslegna grasið, sandfjaran og hafið, fjallasýnin og víður himinninn. Norðurljós og stjörnubjartar nætur. Hvalir, selir, álftir, gæsir og hrafnar.

Leiddar saunagusur eru stór hluti af upplifuninni og bjóðum við alla velkomna til að koma og njóta með okkur. Hægt er að bóka sig í opnar gusur hjá mismunandi gusumeisturum og bóka einkagusu þar sem gestir geta sjálfir komið að skipulagningu gusunnar eða viðburðarins.

Hólmurinn er staður til að kasta af sér mæðinni, draga andann djúpt og kjarna sig.

AÐSTAÐAN
01Tvær vel byggðar saunurÍ UPPBYGGINGU
02BúningsklefiTILBÚIÐ
03Aðstöðuhús með salerniTILBÚIÐ
04EldstæðiTILBÚIÐ
05SamkomutjaldTILBÚIÐ
06Stutt í sjóinn50 M
07Viðburðasalur og listsköpunarrýmiÍ UPPBYGGINGU
STEINUNN SAUNAGUS

Einstök náttúruupplifun við hafið.

Þrjár 15 mínútna lotur í góðum gusuhita með tónlist, náttúrulegum ilmum, birki, hunangi og þara. Kæling í grasi, sjó eða baðkari á milli lota ásamt léttum veitingum.

Gusumeistarar leiða gesti í gegnum lotur með mismunandi tónlist, þar sem vatni og náttúrulegum ilmum er hellt á heita steina og hitanum dreift um saununa með handklæði eða blævæng sem eykur svitamyndun og hreinsun líkamans.

NAFNIÐ

Steinunn Saunagus fékk nafnið sitt frá Steinunni gömlu, frænku Ingólfs Arnarsonar, landnámskonu sem talin er hafa verið fyrsta konan sem eignaðist land á Íslandi — og er það landið sem Steinunn Saunagus stendur á núna.

Okkur þykir Steinunn tilvalið nafn á saunagusu þar sem gusumeistarar unna steinum til að una fólki.

Svona finnurðu okkur
Kort af leiðinni að Hólmur Heilsa í Leirunni

Hólmur er í Leirunni, á milli Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar — beygðu af Garðskagavegi og fylgdu veginum niður að sjónum.

OPNA Í GOOGLE MAPS
MYNDIR AF HÓLMINUM
Eldstæðið logar við sólsetur
Horft út um dimma dyr á gesti við saununa
Skuggi gests með saunahatt í grasinu
Bleikur drykkur með flamingóhræru, gestir í sloppum
Gestur í köldu baðkari milli húsanna, sjórinn í baksýn
Gamli skúrinn að innan — baujur og spegill
Brosandi kona í björtu eldhúsinu á Hólmi
Emaleruð kanna og skál við baðkarið
Borð með lúpínum, grænmeti og drykkjum
Notalegt herbergi með stórum glugga út á sjó
Hlæjandi gestur með saunahatt í köldu baði
Gestir hvíla sig í grasinu í sloppum á milli lota
Staðurinn — fimm hektarar við sjóinn | Hólmur Heilsa